sunnudagur, nóvember 06, 2005

Sæl verið þið..jæja nú erum við mæðgunar fluttar til ömmu og afa í Hlíðarhjallann þar sem pabbi þurfti að fara til útlanda í viku að spríkla í fótbolta..okkur líður alveg svakalega vel hjá ömmu önnu og afa reyni enda stjanað við okkur eins og prinsessur :)..hins vegar vil ég bara benda á að prinsessan er komin með heimasíðu á barnalandi undir óskírð Baldursdóttir ..við erum svo búin að panta spes athöfn í Hjallakirkju fyrsta í aðventu eða 27 nóvember svo krúttið fær þá sitt nafn og mamma getur hætt að kalla mig prinsessu...sem ég ber þó með stakri prýði...en endilega kíkið á síðuna mamma lofar að vera dugleg að setja inn myndir af mér þar....biðjum að heilsa í bili...

fimmtudagur, október 20, 2005

Jæja nú koma nokkrar myndir af prinsessunni okkar sem alltaf er að stækka...kinnarnar blása út og undirhaka að myndast haldiði að mar sé ekki fín ;)...hér geti þið reynt að sjá hverjum mar er líkur...en ég held barasta ég mamma og pabbi eigi mig bæði :)


...hér setti mamma húfu á hausinn minn þar sem ég hef hnerrað soldið undanfarið svo mamma hélt að ég væri að fá kvef..húfan á sem sagt að koma í veg fyrir það..mér finnst það alla veganna ekkert leiðinlegt að hafa hana :)

Hér er ég svo í stellingu sem ég kann mjög vel við mig og það er með hendina upp í mér og að sjúga ooooo það er svo gott :) gæti stundum tekið hana af því ég síg svo fast...en annars er mamma að vinna í því að setja upp síðu á barnalandi og það fer vonandi að virka hvað og hverju...bið annars að heilsa öllum í bili...kveðja prinsessan og co :)


mánudagur, október 17, 2005



jæja jæja jæja loksins kom prinsessan okkar í heiminn...svona yndisleg og fín! fæðingin gekk frekar hægt en hún skaust í heiminn 7 mínótur fyrir 4 aðfaranótt miðvikudags og er því fædd þann 12 október :)...síðan þá hefur hún verið hin eina sanna prinsessa sem drekkur og sefur til skiptis og hjalar svo eins og henni einni er lagið...þetta er alveg yndislegt barn get ég sagt ykkur ;)...það er samt alveg fyndið hvað allt lífið snýst núna um hvort hún sé ekki örugglega í góðri stellingu, hvort henni sé nokkuð of heitt eða kalt og svo má hún ekki sofa of lengi svo mamma þarf oft að vekja hana til að drekka...en hún braggast mjög vel og allir svo ánægðir með hana svo við svífum enn um á bleiku skýji hérna í álfkonuhvarfinu....en ég læt fylgja eina litla mynd ykkur til skemmtunar :) en ég held að hún sé með nefið hennar mömmu sinnar en restina fékk hún að mestu frá pabba sínum ...en kannski á mar eftir að breytast hver veit :)..en við biðjum að heilsa í bili og lofum að setja inn fleiri myndir á næstunni svo þið getið séð hvað mar dafnar vel....kveðja til allra frá litlu fjölskyldunni...p.s við þökkum kærlega fyrir öll smsin..símtölin og gjafirnar sem við höfum fengið ....þetta er allt ómetanlegt !!

mánudagur, október 10, 2005

góðan og glaðan dag allir saman...jæja helgin leið tíðindalítil..pabbi fékk ekki erfingja í ammælisgjöf eins og hann var að vonast eftir..en hann átti ammæli á laugardaginn og var haldin svaka veisla honum til heiður..til lukku með það minn kæri faðir...svo á tengdamamma og gígja frænka ammæli í dag og það eru bundnar vonir við að krílið komi í dag en ég get sagt ykkur að það þarf að fara flýta sér ef svo á að vera...ég hins vegar vakti meginpartinn af nóttinni vegna verkja og var SVO að vonast til að allt væri að fara af stað en nei nei svo bara gerist ekkert...þetta er orðið svona úlfur úlfur dæmi ...held barasta að þegar þetta byrjar allt saman þá neita ég að trúa því...en ég neita því ekki að ég er með solla verki svo við vonum bara að þeir aukist og þetta fari að koma allt...þetta er samt í fyrsta skipti sem mar vonar að mar sé að fá verki haldiði að það sé...en þeir eru þess virði....en ætla að fara hreyfa kroppinn svo krúttið fari á ferð..bið að heilsa í bili :)

fimmtudagur, október 06, 2005

þessi glæsilega dagsetning loksins runnin upp..6 október 2005..en viti menn það er bara ekkert að gerast og elsku litla yndið mitt í mallanum er held ég bara ekkert á leiðinni í fangið á mömmu sinni...skiljanlega það er örugglega bara obboslega gott að liggja þarna og gera það sem manni sýnist....en við bara verðum dugleg að fara út að ganga og labba upp og niður stiga og svona...ég held að krílið komi ekkert fyrr en eftir helgi en það verður tíminn einn að leiða í ljós...en annars er bara allt gott að frétta og stefnan er tekin á bachelorinn í kvöld svona spurning hvort mar geti horft á þetta með bæði augun opin eða hvort mar þurfi að grípa fyrir mjög reglulega..held að það seinna verði fyrir valinu sökum vandræðaleika...en það kemur í ljós í kveld...en ætla nú að fara arka og dansa magadans ;)...bið að heilsa í bili og hver veit nema næsta færsla verði með myndum að krúttinu okkar..vonum það bara ;)

þriðjudagur, október 04, 2005

...jæja tveir daga í settann dag íhahahha...fyndið hvað þessi dagsetning er búin að vera skrifuð í heilann á manni síðasta árið og svo kannski gerist ekkert þann 6 okt...humm...en svefninn í nótt var ekkert sá besti lá andvaka í marga klukkutíma með smá verki svo hvað veit mar að þetta fari að skella á...en það eru nokkrir þættir sem ég hlakka hvað mest til að upplifa hér á næstu dögum og ætla ég að deila þeim með ykkur:
-hvernig fer fæðing eiginlega af stað..er þetta bara vont?
-hvernig á ég eftir að standa mig í fæðingunni, ég skal, vil og get ;)
-hvernig á Baldur minn eftir að standa sig í fæðingunni, mun hann líða útaf ;)
-hvernig á yndið okkar eftir að líta út eftir þetta allt saman? og hverjum verður það líkt?
-hvernig ætli það sé að vera mamma og gefa barni brjóst, örugglega það yndislegasta í heimi!

en þetta á nú allt eftir að koma í ljós og skal ég svara þessum vangaveltum þegar ég hef fengið svör við þeim :)

annars vona ég að þið hafið það gott...og bara smá svona þá fékk ég eitt skemmtilegasta símtal í gærkveldi sem ég hef fengið lengi og get ég sagt ykkur að ég er enn brosandi eftir það :) allan hringinn...meira um það seinna..

yfir og út í bili..og ég lofa að leyfa ykkur að fylgjast með líðan verðandi móður og upplýsa þegar allt fer af stað íha

laugardagur, október 01, 2005


Tilraunastarfsemi í gangi...bara að athuga hvort ég kunni/ geti sett inn myndir ykkur til ánægju og yndisauka...og auðvitað valdi ég mynd af mér og minni fallega stóru bumbu til að athuga hvort þetta væri að ganga..en í raun er ég bara að tjékka á þessu þar sem við höfum ekki ákveðið hvort við notum þessa síðu áfram eða stofnum síðu á barnalandi þegar litla yndið okkar kemur...vinir og ættingjar sérstaklega erlendis verða jú að fá að fylgjast með ;) hinir geta mætt í heimsókn í álfkonuhvarfið og fengið að auki þá að knúsa krílið....en yfir og út í bili

...góðan og glaðan laugardag allir saman...ég varð fyrir því skemmtilega atviki um daginn að vera klukkuð af henni Auði minni svo ég ætla nú að byrja á því að losa mig undan því múvi...það er segja 5 staðreyndir um sjálfan mig eins og þetta gengur víst út á:

1. Ég geng með barn í maganum og á aðeins 5 daga eftir, en það fyndna við það þá vissum við ekki að bumbubúinn okkar væri þarna fyrr en eftir 10 vikur og 3 daga, segiði svo að þessi óléttupróf séu 99% örugg...
2. Ég er mjög svo smeyk eða mætti jafnvel segja hrædd við öll dýr sem hreyfa sig, þó mismikið samt en mér líkar aldeilis ekki vel að fara í heimsókn þar sem hundar eða kettir eða þaðan af verra er til staðar...
3. Ég hef alla tíð verið mjög heimakær og fengið mikla heimþrá þegar ég fer að heiman, þegar ég var lítil þá gat ég ekki einu sinni farið í sumarbúðir til Eiða sem er nota bene 10 mínótum frá Egilsstöðum án þess að koma heima eftir 2-3 daga út grenjuð ( ekkert pirrandi barn neitt)..eitt sinn gerði ég mér upp svaka veikindi og Edda "yfirverndarinn, kona Kent ;)" þorði ekki annað en að fara með mig í skoðun á sjúkrahúsið á Egilsstöðum og greindist ég þar með ristilveiki einhverja þó það amaði ekkert að mér...en ég fékk samt að fara heim til mömmu og pabba á eftir :) takmarkinu náð...
4. Einu sinni ætlaði ég að svindla á stærðfræðiprófi í MS sem gekk út á sannanir...var búin að gera þennan fína svindlmiða og setja í pennaveskið en varð svo stressuð þegar prófið byrjaði að ég þorði ekki að opna pennaveskið og þurfti því að fá lánað strokleður...þetta kennir manni að vera ekki að svona vitleysu...
5. Þegar ég var yngri þá fannst mér einnar skemmtilegast að þykjast vera söngkona og það leið ekki sá dagur sem ég dressaði mig ekki upp setti plötu á fóninn, heyrnatól á eyrun og hélt svo tónleika fyrir ímyndaða tónleikagesti..en ótrúlegt samt ég var alltaf klöppuð upp aftur ;)


En að öðrum málefnum þá fer nú að styttast í það að krílið okkar yndislega láti sjá sig...í gærkveldi fannst mömmu nú að það ætlaði bara að fara koma svo múttan dreif sig í það að taka saman fötin fallegu sem barnið á að fara heim í og allt sem þarf að fara með upp á deild...en krílið hefur ekki enn látið sjá sig svo taskan fallega bíður spennt eftir því að vera notuð...en í dag eru nákvæmlega 5 dagar í settann dag þann 6 október og fer biðin því loks að vera búin, vonum við....ég má ekki gera mikið um helgina og verð því bara að liggja með tærna upp í loft sem er ekkert svo slæmt en heimilisfaðirinn fer fyrir okkar hönd á skrall í kvöld þar sem lokahóf KSÍ er víst í kvöld..hann er samt búinn að lofa að vera með símann mjög hátt stiltann ef eitthvað skyldi nú gerast...

en mér til mikillar skemmtunar þá horfðum við á fyrsta þáttinn í aðþrengdum eiginkonum í gær það er séríu tvö sem lofar MJÖG svo góðu...get bara ekki beðið eftir því að fá fleiri þætti...

en alla veganna þá biðjum bið að heilsa í bili og við látum nú ykkur vita hvenær krílið ætlar sér að koma...þess vegna stay tuned

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com